Hagalfiskur

Solaster endeca (Purple sun star)

Hagalfiskurinn er líka kallaður sólstjarna. Ólíkt flestum öðrum krossfiskum hér við land (nema sæsólinni) er hagalfiskurinn með fleiri en 5 arma. Reyndar eru þeir mismargir eftir einstaklingum en yfirleitt 8 til 10.

Hann verður mjög stór eða allt að 40 cm í þvermál. Hann er yfirleitt fjólublár á litinn en getur líka verið rauður, gulur eða blár.

Hagalfiskinn er einna helst að finna í köldum sjói á norðurhveli jarðar, bæði í Norður Atlantshafi og í austanverðu Norður Kyrrahafi. Hann finnst a landgrunninu allt í kringum Ísland.

Hagalfiskurinn er rándýr eins og flestir krossfiskar. Hann étur ýmsa botnhryggleysingja og jafnvel aðra krossfiska.

HÞV

Pin It on Pinterest

Share This