Mosadýr

Bryozoa

Mosadýrin eru dýr, eins og nafnið gefur til kynna, en líkjast mjög plöntum, eins og nafnið gefur reyndar einnig til kynna.

Hver einstaklingur er örsmár, en þau mynda hinsvegar ætíð sambýli. Sambýli þeirra minna í fljótu bragði á gróður líkt og sambýli hveldýra, sem þó eru alls óskyld.

Mosadýr mynda skánir aða litlar hríslóttar greinar sem sitja gjarnan á steinum og þarastilkum.

HÞV

Pin It on Pinterest

Share This