Brennihvelja

Cyanea capillata

Marglyttur eru þekktustu holdýrin og er hveljustigið langmest áberandi meðal þeirra. Hveljustig marglyttunnar er kynþroskastig hennar og þá sleppir hún kynfrumum sem breytast í lirfur. Þessi lirfustig setjast svo til botns sem litlir separ og bíða af sér veturinn. Á vorin fer sepastigið að vaxa og fjölga sér. Á sumrin og haustin þroskast það yfir í hveljustig og losnar frá botni. Marglyttur setja því helst svip sinn á umhverfi sjávar á sumrin og fram á haust.

Marglyttur eru stærstu svifdýrin og verða oft yfir metri í þvermál. Brennihveljan eða brennimarglyttan er stærsta marglytta í heiminum og er skráð í heimsmetabók Guinness sem lengsti hryggleysingi í heimi. Brenniþræðir sem koma niður úr henni geta orðið allt að 37 metra langir. Brennihveljan er algeng við Ísland.

HÞV

Pin It on Pinterest

Share This