Bertálknar

Nudibranchia

Bertálknar eru sniglar sem eru ekki með skel. Þeir eiga það sameiginlegt að vera rándýr og éta þá ýmiskonar botnlæg smádýr svo sem mosadýr, hveldýr aða svampa.

Þeir bera nafns sitt af því að tálknin eru að utanverðu og mynda nokkurskonar krans á bakinu. Þeir eru yfirleitt mjög skraulegir.

Sumir kynnu að spyrja sig hvernig þeir verjast óvinum sínum þar sem þeir eru oft áberandi og ekki með neina skel til varnar. Svarið við því er að þeir verjast með vondu bragði eða eitri og eru þeir gjarnan litskrúðugir til að minna á það.

Eitrið framleiða þeir ekki allt sjálfir. Sumar tegundir geta endurnýtt eiturnálasekki úr holdýrunum sem þeir éta, sekkjunum koma þeir fyrir á öngunum og totunum á baki sér.

Bertálknar eru afar skrautlegir en þeir nánast ekkert verið rannsakaðir hér við land og er því ekki mikið vitað um þá. Tegundirnar eru þó margar og þeir setja óneitanlega skemmtilegan svip á botndýralífið.

HÞV

Pin It on Pinterest

Share This