Sæfluga

Clione limacina

 

Sæflugan (Clione limacina) er ein af sérkennilegustu lífverum norðurslóða og er oft kölluð „sæengill“ á ensku (Sea Angel). Hún tilheyrir hópi vængsnigla, sem eru ólíkir flestum öðrum sniglum að því leyti að þeir synda frjálsir um í sjónum í stað þess að lifa á hafsbotni.

Ólíkt mörgum ættingjum sínum hefur sæflugan misst skelina á fullorðinsstigi. Hún hreyfir sig áfram með tveimur vænglaga útvexti og virðist svífa áreynslulaust í gegnum sjóinn. Fullorðin dýr eru yfirleitt 1–8 cm að lengd og teljast því stór miðað við aðra vængsnigla.

Sæflugan er kaldsjávartegund og finnst reglulega við Ísland, sérstaklega við norður- og austurströndina þar sem sjórinn er kaldastur. Tegundin er útbreidd á norðlægum hafsvæðum bæði í Norður-Atlantshafi og Norður-Íshafi.

Þrátt fyrir sakleysislegt útlit er sæflugan afkastamikið rándýr. Hún nærist nær eingöngu á öðrum vængsniglum, einkum tegundunum Limacina helicina og Limacina retroversa. Ef fæða er af skornum skammti getur hún þó lifað mánuðum saman án þess að éta.

Gegnsær líkami hennar, hægfara sundhreyfingar og sérstakur lífsferill hafa gert sæfluguna að einni þekktustu og heillandi lífveru kaldra heimshafa.

HÞV